Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 09. júní 2021 17:27
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Emil og félagar komnir í úrslit
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Avellino 0 - 1 Padova
0-1 Simone Della Latta ('28)

Emil Hallfreðsson var í byrjunarliði Padova í undanúrslitaleik í úrslitakeppni ítölsku C-deildarinnar.

Padova heimsótti Avellino í dag eftir að hafa gert 1-1 jafntefli í fyrri leik liðanna og úr varð hörkuleikur.

Simone Della Latta skoraði fyrir Padova á 28. mínútu og tókst Emil og félögum að halda forystunni út.

Padova tryggði sig þannig í úrslitaleik um síðasta lausa sætið í Serie B. Þar mun liðið annað hvort mæta AlbinoLeffe eða Alessandria.
Athugasemdir
banner
banner