14.11.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Real Madrid kaupir miðjumann frá Gana

Mynd: Logrones

Mynd: Logrones
Spænska stórliðið Real Madrid hefur gengið frá fyrstu kaupum sínum fyrir næsta sumar, en félagið hefur tryggt sér Ganamanninn Latif Issman frá Logrones á Spáni. FootMercato greinir frá.
Issman er 19 ára miðjumaður sem hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína með Logrones í spænsku C-deildinni, þar sem hann hefur leikið tíu leiki og lagt upp eitt mark.
Madrídingar hafa fylgst grannt með honum undanfarna mánuði og nú ákveðið að láta til skarar skríða. Issman mun þó ekki ganga formlega til liðs við Real Madrid fyrr en næsta sumar.
Þar mun hann byrja hjá varaliði félagsins og fá tækifæri til að þróa leik sinn áður en ákvörðun verður tekin um næstu skref á ferlinum.

?????? Latif Issman has signed for Real Madrid with a deal valid from 2027.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) November 13, 2026
19 year old Ghana midfielder joins from Logrones, contract until June 2030 and initial move to Castilla. ????????
The deal is now completed — following @marca. https://t.co/5yVRIl0KKG