Fotbolti.net
14.11.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Skotmark Arsenal og Tottenham tjáir sig

Antonio Nusa hefur verið orðaður við Arsenal og Tottenham

Antonio Nusa hefur verið orðaður við Arsenal og Tottenham

Canon

Mynd: EPA

Norski landsliðsmaðurinn Antonio Nusa hefur tjáð sig um orðróma um framtíð sína, en hann segist lítið velta fyrir sér þeim félögum sem hafa áhuga á honum.
Nusa hefur verið orðaður við Englandsmeistara Arsenal og nágranna þeirra í Tottenham eftir góða frammistöðu með Leipzig í Þýskalandi, auk þess sem hann átti gott heimsmeistaramót með Norðmönnum í sumar.

Þessi 21 árs gamli vængmaður segist reyna að leiða umræðuna hjá sér og einbeita sér að fótboltanum í stað þess að fylgjast með öllum þeim fréttum sem birtast um framtíð hans.

„Ég reyni að halda mér til hlés. Það er mikið í gangi á sama tíma og ég reyni að opna ekki símann það oft því það er alltaf eitthvað í gangi þar.“

„Ég sé allt ef ég geri það. Hvað sem kemur þá er ég ekki blindur þannig ég skil þetta og þess vegna reyni ég að draga mig til hlés. Ég er með gott fólk í kringnum mig þannig þetta er ekkert stress. Ég reyni bara að njóta hvers einasta dags í þessu lífi hérna í Leipzig. Þetta er frábært lið með frábæran þjálfara. Síðan er ég með umboðsmann sem hugsar um all annað og leyfir mér að einbeita mér að fótboltanum. Það er það mikilvægasta fyrir mér,“
sagði Nusa.

Nusa hefur verið orðaður við félagaskipti strax í janúar, en talið er mun líklegra að hann verði áfram hjá Leipzig út tímabilið og skoði möguleika sína næsta sumar.

Leipzig hefur aldrei selt lykilleikmann í janúarglugganum og fátt bendir til þess að félagið ætli að breyta þeirri stefnu núna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.