Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 09. júní 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Vináttulandsleikir í dag - Strákarnir okkar spila við heimsmeistarana
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: EPA
Það er nóg um að vera í vináttulandsleikjum í dag og í kvöld þar sem fimm HM-þjóðir mæta til leiks, þar á meðal heimsmeistarar Argentínu sem spila við Ísland í Bandaríkjunum.

Argentína spilar við Ísland í nótt og til gamans má geta að þetta er aðeins í annað sinn sem þjóðirnar mætast á alþjóðlegum vettvangi, eftir að hafa gert 1-1 jafntefli í riðlakeppni HM 2018 í Rússlandi.

Leikurinn fer fram á sama tíma og Írak mætir Venesúela í Illinois.

Sádi-Arabía og Senegal eigast þá við í HM-slag í Texas og spilar Austur-Kongó við Síle í Frakklandi, en leikurinn átti upprunalega að fara fram á Spáni áður en hann var færður af hræðslu við nýjan ebólufaraldur.

Leikir dagsins
06:00 Vanúatú - Fídjí
10:00 Kambódía - Hong Kong
11:30 Filippseyjar - Mjanmar
11:35 Kína - Taíland
12:00 Angóla - Mið-Afríkulýðveldið
12:00 Botsvana - Níger
12:00 Eþíópía - Malaví
12:00 Óman - Kúveit
12:00 Tansanía - Rúanda
13:00 Indónesía - Mósambík
14:00 Barein - Sýrland
14:30 Kirgistan - Palestína
15:00 Armenía - Moldóva
15:00 Tadsíkistan - Indland
16:00 Austur-Kongó - Síle
16:00 Miðbaugs-Gínea - Kómoreyjar
16:00 Líbería - Síerra Leóne
16:30 Belarús - Búrkína Fasó
17:00 Ungverjaland - Kasakstan
17:00 Rússland - Trínidad og Tóbagó
18:00 Aserbaídsjan - San Marínó
18:00 Tógó - Benín
23:00 Sádi-Arabía - Senegal
01:00 Argentína - Ísland
01:00 Írak - Venesúela
Slapp
banner
banner
banner