Fotbolti.net
09.07.26 - 09:59
Kári Snorrason

Arsenal og Tottenham sýna Nusa áhuga - Chelsea með augastað á samningslausum Vlahovic

Var á láni hjá Barcelona í vetur.

Var á láni hjá Barcelona í vetur.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Lundúnalið hafa áhuga á norska kantmanninum Nusa, tvísýnt með framtíð Marcus Rashford hjá Man United og Chelsea gæti reynt við Dusan Vlahovic.
Manchester United ætlar að reyna að selja Marcus Rashford (28) áður en liðið fer í æfingaferð til Dublin í ágúst. (The Sun)

Þrátt fyrir það eru einnig uppi áform um að Rashford verði áfram hjá Manchester United og verði hluti af liði Michael Carrick. (The Guardian)

Arsenal og Tottenham eru meðal fimm liða í ensku úrvalsdeildinni sem hafa áhuga á Norðmanninum Antonio Nusa (21) sem er á mála hjá RB Leipzig. (Teamtalk)

Barcelona hefur sett Eli Junior Kroupi (20) hjá Bournemouth á óskalista sinn, en PSG, Arsenal og Tottenham fylgjast sömuleiðis náið með framherjanum. (Fichajes)

Juventus vill að Aston Villa lækki verðmiðann á Emiliano Martínez (33). Félagið hefur þegar náð samkomulagi við markvörðinn um persónulega samninga. (La Gazzetta dello Sport)

Barcelona berst við nokkur lið úr ensku úrvalsdeildinni, þar á meðal Chelsea, Man City og Man United, um ungstirnið Lucas Herrington (18), leikmann Colorado Rapids. (Teamtalk)

Manchester City, Arsenal og Liverpool hafa öll áhuga á miðjumanninum Ayyoub Bouaddi (18) hjá Lille, sem hefur vakið athygli með Marokkó á HM. (Football Insider)

Chelsea gæti skoðað þann möguleika að fá Dusan Vlahovic (26) frá Juventus á frjálsri sölu ef félagið ákveður að styrkja framlínuna í sumar. (CaughtOffside)

Jose Mourinho er með Riccardo Calafiori (24), Piero Hincapié (24) og Ruben Dias (29) á radarnum þar sem hann vill styrkja vörn Real Madrid. (Fichajes)

Fabinho (32), fyrrverandi miðjumaður Liverpool, segist hafa áhuga á að vinna aftur undir Jose Mourinho hjá Real Madrid eftir að hafa yfirgefið Al-Ittihad. (Talksport)
Nusa vakið athygli á HM.

Nusa vakið athygli á HM.

Canon

Mynd: EPA

Mörg stórlið á eftir Kroupi.

Mörg stórlið á eftir Kroupi.

Canon

Mynd: EPA

Samningslaus.

Samningslaus.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.