24.08.26 - 20:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Framarar að kaffæra Blikum eftir að hafa lent undir

Róbert Hauksson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Róbert Hauksson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram er að vinna Breiðablik á Eikarvellinum í Kópavogi 4-1 í hálfleik eftir að hafa lent undir.
Davíð Ingvarsson kom Blikum yfir snemma leiks þegar hann skoraði með skoti úr teignum eftir sendingu frá Kristófer Inga Kristinssyni.

Lestu um leikinn: Breiðablik 3 - 4 Fram
Blikar voru hins vegar ekki lengi í forystu þar sem Fram skoraði tvö mörk með tveggja mínútna millibili. Róbert Hauksson jafnaði metin og Haraldur Einar Ásgrímsson kom liðinu yfir eftir sendingu frá Róberti.
Þriðja markið kom síðan eftir rúmlega hálftíma leik. Anton Ari Einarsson varði boltann út í teiginn og Vuk Oskar Dimitrijevic var fyrstur að átta sig og skoraði.
Kennie Chopart skoraði síðan fjórða markið. Hann átti skot og Anton Ari var í boltanum en tókst ekki að halda honum frá markinu.