24.08.26 - 10:00
Elvar Geir Magnússon
City til í að ganga að verðmiða Chelsea - Balde til Man Utd?

Enzo Fernandez í leik með argentínska landsliðinu.

Mynd: EPA

Alejandro Balde.

Mynd: EPA

Zirkzee.

Manchester City er tilbúið að kaupa Enzo Fernandez, Liverpool íhugar að gera þriðja tilboðið í Yankuba Minteh og bakvörður Barcelona er tilbúinn að ganga í raðir Manchester United.
Manchester City er tilbúið að ganga að verðmiða Chelsea fyrir Enzo Fernandez (25) en Lundúnafélagið er með 120 milljóna punda verðmiða á argentínska miðjumanninum. (Football Insider)
Liverpool og Brighton bjuggust við því að fara í nýjar viðræður í gær um gambíska vængmanninn Yankuba Minteh (22) en Liverpool íhugar að leggja fram þriðja tilboð. (TeamTalk)
Vinstri bakvörðurinn Alejandro Balde (22), sem spilar fyrir Barcelona og spænska landsliðið, hefur gefið umboðsmanni sínum, Jorge Mendes, grænt ljós á að semja um félagaskipti til Manchester United. (Sport)
Aston Villa hefur haft samband við belgíska félagið Club Brugge vegna áhuga á Joel Ordonez (22), ekvadorskum miðverði félagsins. (David Ornstein)
Brentford er að undirbúa 37 milljóna punda tilboð í senegalska varnarmanninn El Hadji Malick Diouf (21) hjá West Ham United. (Football Insider),
Manchester United mun ekki selja hollenska framherjann Joshua Zirkzee (25) fyrir minna en 40 milljónir punda. Juventus, Napoli og Aston Villa hafa sýnt honum áhuga. (Sun)
Luciano Spalletti, stjóri Juventus, er staðfastur í því að tyrkneski framherjinn Kenan Yildiz (21) verði ekki seldur til Arsenal. (Metro)
Barcelona segist ekki vera á höttunum eftir portúgalska miðverðinum Goncalo Inacio (24) hjá Sporting Lissabon. (Fabrizio Romano)
Rui Borges, þjálfari Sporting, neitaði að útiloka að Inacio færi til Barcelona eða AC Milan eftir að hafa tekið hann úr byrjunarliði sínu í leik um helgina. (Goal)
RB Leipzig hefur náð munnlegu samkomulagi við AC Milan um að endurnýja lánssamninginn við franska framherjann Christopher Nkunku (28) út tímabilið með kauprétt. (Sky Sports Þýskaland)