Fotbolti.net
24.08.26 - 11:04
Fótbolti.net

Lið og leikmaður 20. umferðar - Óli Neuer var stórbrotinn

Ólafur Örn Ásgeirsson er leikmaður umferðarinnar.

Ólafur Örn Ásgeirsson er leikmaður umferðarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
20. umferð Lengjudeildarinnar var spiluð um helgina en stórleikur umferðarinnar var í Kórnum í Kópavogi þar sem HK vann 3-0 sigur gegn Þrótti. Það er vel við hæfi að leikmaður umferðarinnar komi úr þeim leik.

LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Ólafur Örn Ásgeirsson - HK
„Óli Neuer var stórbrotinn í dag varði endalaust, Þróttur hefði ennþá getað verið að spila og Óli væri ennþá að verja og halda hreinu!" skrifaði Sigurjón Árni Torfason um frammistöðu markvarðar HK í sigrinum gegn Þrótti.

Dominik Radic skoraði tvö fyrir HK og varnarmaðurinn Þorsteinn Aron Antonsson skoraði eitt. Þeir fá líka pláss í liði umferðarinnar.

Afturelding styrkti stöðu sína á toppi deildarinnar með 7-0 útisigri gegn Ægi og Mosfellingar eru í bílstjórasætinu í baráttunni um að vinna deildina og komast beint upp. Magnús Már Einarsson er þjálfari umferðarinnar. Haukur Örn Brink var meðal markaskorara og var valinn maður leiksins. Annar ungur leikmaður, Róbert Agnar Daðason (17 ára), kom af bekknum og skoraði tvö mörk.

Guðmundur Tyrfingsson var maður leiksins þegar Fylkir rúllaði yfir Grindavík 6-1 en hann skilaði marki og stoðsendingu. Arnór Breki Ásþórsson tók öflug föst leikatriði og var með tvær stoðsendingar.

Njarðvík vann flottan 4-0 sigur gegn Völsungi þar sem Bragi Karl Bjarkason var valinn maður leiksins. Tvö mörk frá Braga í leiknum, og það seinna var algjör negla.

Guðjón Máni Magnússon skoraði tvö mörk þegar ÍR vann 3-1 sigur gegn Gróttu. Óliver Andri Einarsson skoraði fyrsta mark leiksins og átti stóran þátt í örðu marki ÍR.

Þá var Devyn Payne maður leiksins í 2-0 sigri Vestra gegn Leikni. Devyn var eins og klettur í vörn Vestra.

Fyrri úrvalslið:
19. umferð - Bergvin Fannar Helgason - ÍR
18. umferð - Valdimar Jóhannsson - Njarðvík
17. umferð - Birnir Breki Burknason - Leiknir
16. umferð - Aron Snær Ingason - Þróttur
15. umferð - Elfar Árni Aðalsteinsson - Völsungur
14. umferð - Birkir Eyþórsson - Fylkir
13. umferð - Óðinn Bjarkason - Afturelding
12. umferð - Andri Freyr Jónasson - Grótta
11. umferð - Birkir Már Sævarsson - Afturelding
10. umferð - Edson - Vestri
9. umferð - Elfar Árni Aðalsteinsson - Völsungur
8. umferð - Sigurður Egill Lárusson - Þróttur
7. umferð - Andi Hoti - Afturelding
6. umferð - Jordan Adeyemo - Ægir
5. umferð - Mattías Kjeld - Grótta
4. umferð - Svavar Örn Þórðarson - HK
3. umferð - Ibrahima Balde - Vestri
2. umferð - Kári Sigfússon - Fylkir
1. umferð - Stefán Þór Pálsson - ÍR
Gummi Tyrfings var maður leiksins gegn Grindavík.

Gummi Tyrfings var maður leiksins gegn Grindavík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bragi Karl Bjarkason skoraði tvö fyrir Njarðvík.

Bragi Karl Bjarkason skoraði tvö fyrir Njarðvík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding19+2939
2Þróttur R.20+1837
3Fylkir20+1237
4HK20+1235
5Njarðvík20+1035
6Grótta19-127
7Vestri20-927
8Leiknir R.20025
9ÍR20-525
10Grindavík20-1121
11Völsungur20-1620
12Ægir20-398
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.