Ágúst Orri keyptur í hollensku úrvalsdeildina (Staðfest)

Með Ágústi Orra eru Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Ágústs, og Mark Ruij sem er tæknilegur ráðgjafi hollenska félagsins.

Mynd: Aðsend

Gerir þriggja ára samning í Rotterdam.

Mynd: Excelsior

Ágúst á að baki 16 Evrópuleiki með Blikum og hefur á þessu tímabili skorað sex mörk og lagt upp fjögur í Bestu deildinni. Þá hefur hann skorað fjögur mörk í jafn mörgum bikarleikjum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Með Ágústi Orra eru Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Ágústs, og Mark Ruij sem er tæknilegur ráðgjafi hollenska félagsins.

Mynd: Aðsend
Ágúst er sóknarmaður, vinstri kantmaður, sem fæddur er 2005. Hann hefur verið í lykilhlutverki hjá Blikum á tímabilinu og spilað vel. Hann vakti athygli í Sambandsdeildinni með Blikum í fyrra, var mjög nálægt því að fara erlendis í vetur en fer núna til Hollands.

Ágúst Orri á leið til Hollands
Fyrsti leikur eftir komu Ágústs Orra hjá Excelsior er nágrannaslagur gegn Sparta Rotterdam á heimavelli Excelsior. Liðið spilar á Stadion Woudestein sem tekur 4500 manns í sæti. Excelsior endaði í 13. sæti í fyrra og er með þrjú stig eftir tvo spilaða leiki á þessu tímabili.
Á þessari öld hafa þrír Íslendingar spilað með Excelsior. Það eru þeir Mikael Anderson, Ögmundur Kristinsson og Elías Már Ómarsson. Á síðustu ár spiluðu þeir Karl Heimir Karlsson og Árni Sveinsson með liðinu. Þjálfari liðsins er 35 ára gamall Hollendingur, Ruben den Uil.
„Við óskum Gústa innilega til hamingju með félagaskiptin og óskum honum góðs gengis í Hollandi," segir m.a. í tilkynningu Breiðabliks.

Gerir þriggja ára samning í Rotterdam.

Mynd: Excelsior

Ágúst á að baki 16 Evrópuleiki með Blikum og hefur á þessu tímabili skorað sex mörk og lagt upp fjögur í Bestu deildinni. Þá hefur hann skorað fjögur mörk í jafn mörgum bikarleikjum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

