24.08.26 - 15:16
Elvar Geir Magnússon
Allt hnífjafnt í leikjum Sigga Ragga gegn Klakksvíkingum

Daniel Obbekjær var hetja NSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Ragnar Eyjólfsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daniel Obbekjær var hetja NSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurður Ragnar Eyjólfsson og lærisveinar í NSÍ Runavík eru áfram með þriggja stiga forystu á toppi færeysku úrvalsdeildarinnar eftir að hafa bjargað stigi á magnaðan hátt gegn ríkjandi meisturum KÍ frá Klakksvík í gær.
Staðan var markalaus eftir fyrri hálfleik en NSÍ var komið í 2-0 á 67. mínútu. NSÍ gafst ekki upp, Petur Knudsen minnkaði muninn á 83. mínútu og á áttundu mínútu uppbótartíma jafnaði Daniel Obbekjær, sem lék með Breiðabliki fyrir tveimur árum, í 2-2 sem urðu lokatölur.
Alex Freyr Elísson, eini íslenski leikmaðurinn í deildinni, lagði upp jöfnunarmarkið eftir að hafa komið inn sem varamaður.
Sjö umferðir eru eftir af deildinni, NSÍ er með 41 stig, KÍ 38 stig, svo koma grannarnir í HB og B36 með 34 stig og Víkingur frá Götu er með 33 stig.

TENGT EFNI
Má ekki hafa æfingar á sunnudögum því þá er kirkja
Í Færeyjum er leikin þreföld umferð og er áhugavert að allar þrjár viðureignir NSÍ og KÍ enduðu með jafntefli; 1-1, 0-0 og svo 2-2.
Þá mættust liðin í undanúrslitum bikarsins þar sem leikið er heima og að heiman. Hvort lið vann heimaleikinn 4-2, einvígið endaði því 6-6 og samanlögð markatala í viðureignum liðanna þetta tímabilið er 9-9. KÍ vann undanúrslitaeinvígið eftir vítakeppni og mun mæta Víkingi í úrslitaleiknum 5. september.