24.08.26 - 19:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ísak með tvennu í endurkomusigri Köln

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ísak Bergmann Jóhannesson átti frábæran leik þegar Köln vann endurkomusigur á Wurzberger Kickers, sem leikur í C-deildinni, í þýska bikarnum í kvöld.
Köln var marki undir í hálfleik en Ísak jafnaði metin eftir rúmlega klukkutíma leik þegar hann skoraði með skoti úr teignum. Hann tryggði liðinu síðan sigurinn með marki á 77. mínútu.
Daníel Tristan Guðjohnsen kom inn á sem varamaður í 3-0 tapi Malmö gegn Djurgarden í sænsku deildinni. Malmö er í 7. sæti með 26 stig eftir 18 umferðir.
Logi Hrafn Róbertsson var ekki í leikmannahópi Varnamo sem gerði 1-1 jafntefli gegn Landskrona í næst efstu deild í Svíþjóð. Ísak Andri Sigurgeirsson var ónotaður varamaður í 2-1 sigri Norrköping gegn Falkenberg í toppslag.
Norrköping er á toppnum með 44 stig, níu stigum á undan Falkenberg sem er í 2. sæti. Varnamo er í 14. sæti með 19 stig.