Fotbolti.net
24.08.26 - 13:00
Elvar Geir Magnússon

Slys á fólki vegna flugelda á leik í Hollandi

Frá leik Cambuur og Feyenoord.

Frá leik Cambuur og Feyenoord.

Canon

Mynd: EPA

Hollenska félagið Cambuur segir að stuðningsmenn hefðu hlotið „brunasár, heyrnarskaða og augnskaða“ eftir að stuðningsmenn Feyenoord köstuðu flugeldum í viðureign liðanna í gær.
Leikurinn var stöðvaður í um tíu mínútur í fyrri hálfleik eftir að áhorfendur kveiktu á fjölda rauðra blysa og köstuðu flugeldum.

Einhverjir flugeldanna lentu á svæði þar sem stuðningsmenn heimamanna voru og Cambuur segir í yfirlýsingu að staðfest væri að fimm stuðningsmenn hefðu slasast.

Giovanni van Bronckhorst, stjóri Feyenoord, baðst afsökunar fyrir hönd félagsins til Cambuur eftir leikinn.
Slys á fólki vegna flugelda á leik í Hollandi
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.