24.08.26 - 14:22
Elvar Geir Magnússon
Fékk tveggja leikja bann fyrir að skora með hendi - „Opnar ormagryfju“

Mynd: Skjáskot

Mynd: Skjáskot
Aune Heggebö, leikmaður West Bromwich Albion, skoraði með hendi í 2-1 sigri gegn Norwich í fyrstu umferð Championship-deildarinnar. Ekki er notast við VAR í deildinni og markið fékk að standa.
Norðmaðurinn fékk hinsvegar ákæru í gegnum lítt þekkta reglu og var dæmdur í tveggja leikja bann fyrir að „blekkja dómara leiksins“.

James Morrison, stjóri West Brom, er allt annað en sáttur við niðurstöðuna og segir að leikmaður sinn hafi ekki skorað vísvitandi með hendinni.
„Við viljum standa með Bo því hann er ekki svona karakter. Hann er leiður yfir því að samkvæmt kærunni er hann kallaður svindlari og við vitum allir að það er hann ekki," segir Morrison.
„Ef það á að dæma eftir þessari reglu þurfum við að sætta okkur við það, en það verður að vera stöðugleiki í gegnum allt tímabilið. Enska fótboltasambandið er að opna ormagryfju."
Heggebö tók út bann í 3-1 sigri gegn Burnley og verður líka í banni í deildabikarleik gegn Newcastle á miðvikudag.

West Brom striker Aune Heggebo has been banned for 2 games for “successful deception of match officials” after scoring this goal against Norwich! ????
— Sleeper Football (@SleeperFooty) August 21, 2026
The England team that faced Diego Maradona’s Argentina in 1986 would like a word… pic.twitter.com/Ji1dPnDBUx