24.08.26 - 09:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tryggvi í banni gegn verðandi liðsfélögum
Kom úr frystinum og fer strax í bann

Rautt á bekk Víkinga.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Baldvin fékk rautt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tryggvi ekki með gegn ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rautt á bekk Víkinga.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þrír í Bestu deildinni eru komnir í leikbann eftir leikina fimm í deildinni í gær. 20. umferðin klárast svo í kvöld þegar Breiðablik og Fram mætast, en Ívar Örn Árnason tekur út leikbann í þeim leik.
Tryggvi Hrafn Haraldsson, leikmaður Vals, fékk sitt fjórða gula spjald gegn Víkingi í gær og verður ekki með gegn ÍA í 21. umferðinni. Tryggvi, sem er uppalinn Skagamaður, mun ganga í raðir ÍA eftir tímabilið. Hann hefur verið besti leikmaður Vals á tímabilinu.

Aron Baldvin Þórðarson, aðstoðarþjálfari Víkings, fékk rautt spjald gegn Val og verður því ekki á hliðarlínunni gegn KR í næstu umferð.
„Tekur tryllinginn á bekknum og fær að líta rauða spjaldið fyrir," skrifaði Elíza Gígja Ómarsdóttir í texalýsingu leiksins.
Daníel Finns Matthíasson fékk sitt fjórða gula spjald í sumar eftir að hafa komið inn á sem varamaður í liði Stjörnunnar gegn Þór. Daníel hafði verið ósáttur við sína stöðu og ekki spilað í lokaleikjunum undir stjórn Jóns Þórs Haukssonar sem var látinn fara í liðinni viku. Daníel verður ekki með Stjörnunni gegn Blikum næsta mánudag.
21. umferðin í Bestu
laugardagur 29. ágúst
17:00 ÍBV-Þór (Hásteinsvöllur)
sunnudagur 30. ágúst
17:00 Fram-KA (Lambhagavöllurinn)
17:00 FH-Keflavík (Kaplakrikavöllur)
19:15 Valur-ÍA (N1-völlurinn Hlíðarenda)
mánudagur 31. ágúst
19:15 Breiðablik-Stjarnan (Eikarvöllurinn)
þriðjudagur 1. september
17:15 KR-Víkingur R. (Meistaravellir)