Fotbolti.net
24.08.26 - 13:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Jón Þór: Þar komu fyrstu rauðu flöggin fram

Jón Þór var látinn fara frá Stjörnunni í siðustu viku.

Jón Þór var látinn fara frá Stjörnunni í siðustu viku.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Þór Hauksson, sem látinn var fara frá Stjörnunni í síðustu viku, ræddi við Gunnlaug Jónsson í viðtali á Rás 2.

Í hlekknum hér að neðan má lesa hvað Jón Þór hefur að segja um brottreksturinn sjálfan en í viðtalinu ræddi hann einnig um tíma sinn hjá Stjörnunni og umgjörðina hjá félaginu.
Jón Þór: Þarf illan hug til að búa til svona ljótar sögur
TENGT EFNI

Jón Þór: Þarf illan hug til að búa til svona ljótar sögur

Rætt hefur verið um að leikmenn Stjörnunnar væru ekki í nægilega góðu formi. Jón Þór hafði sitt hvað að segja um það.

„Það sem kom mér alveg svakalega á óvart... ég var eiginlega í pínu sjokki þegar ég byrjaði að starfa í Stjörnunni. Það reynist enginn styrktarþjálfari, enginn sjúkraþjálfari og enginn fitness þjálfari starfandi í klúbbnum. Mér fannst þetta vera í hrópandi ósamræmi við það að Stjarnan ætlaði sér að vera topplið á Íslandi og í titilbaráttu þetta tímabilið. Ég vissi ekki af því fyrir fram," segir Jón Þór í viðtalinu.

Jón Þór erfði þjálfarateymi Jökuls Elísabetarsonar sem hafði verið látinn fara en tveimur vikum eftir að Jón Þór tók við hætti Hrannar Bogi Jónsson sem aðstoðarþjálfari. Jón Þór segir að Hrannar hafi ekki treyst sér til að halda áfram.

„Þetta er hörkunáungi og flottur þjálfari. Eftir fyrsta sigurinn, gegn KA á heimavelli, þá mjög óvænt segir hann upp sínum störfum. Það var ekki óvænt út frá þjálfaraskiptunum, en kom okkur í opna skjöldu miðað við þau samtöl sem áttu sér stað og líka út frá hversu hart var lagt að mér að halda honum. Það var alveg ljóst og klárt frá stjórnendum klúbbsins að það var eindreginn vilji að halda Hrannari í starfi aðstoðarþjálfara og það var eitthvað sem ég var opinn fyrir."

Jón Þór segist hafa sótt fast að því að fá inn sinn aðstoðarmann.

„Ég hafði nokkrar hugmyndir um það, en þetta bara mjög brátt að og það var stutt í næsta leik og stór verkefni framundan. Við áttum deildarleik á móti FH og svo Evrópuleikir eftir þá helgi. Það var mikil törn framundan, þurfti að bregðast hratt og vel við þeirri stöðu sem var komin upp. Ég fór að hlera í kringum mig og átti fundi og samtöl við mæta menn. En ég finn það hins vegar strax að ég fæ ekkert rosalega mikinn stuðning við þeim hugmyndum sem ég vildi fá inn í félagið mér við hlið. Þar komu fyrstu rauðu flöggin fram, bara strax á fyrstu dögum í starfi. Eftir á að hyggja fékk ég ekki nægilega mikinn stuðning þegar þetta mál kemur upp."

Hann segir sérstakt að hann hafi ekki fengið að velja sér aðstoðarmann.

„Auðvitað vildi ég bæta við þessa umgjörð með sjúkra- styrktar og fitnessþjálfara. Maður þarf samt að bera virðingu fyrir því að reksturinn á íþróttaklúbbum getur verið erfiður á Íslandi. Maður verður að treysta þeim rekstrarmönnum sem eru að stjórna félögunum hverju sinni. En ég gerði þeim það alveg ljóst frá fyrsta degi að til þess að geta titlað sig sem toppklúbb á Íslandi þá yrðu þessir hlutir að vera í lagi. Það er sama með þetta, ég fór strax út á örkina að þreifa fyrir mér varðandi þessi störf og finna réttu aðilana í þetta, en það var það sama, ég fann að ég myndi ekki komast neitt áleiðis með þau mál innanhúss af því það var lítill sem enginn áhugi til að vinna þá hluti með mér," sagði Jón Þór.

Hann var spurður hvort hann hefði ekki fengið nægilegan stuðning frá stjórninni.

„Nei, eins og ég sagði áðan þá mætti ég algjöru áhugaleysi þegar ég var að reyna finna réttu aðilana í teymið til að bæta umgjörð. Annað hvort var mér ekki treyst eða það var ekki rekstrarlega mögulegt. Það var mjög erfið byrjun, en okkur fannst við vera að ná ágætlega um þetta."

Samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net er Egill Atlason sjúkraþjálfari Stjörnunnar.
Olgeir Sigurgeirsson, Hákon Ernir Haraldsson og Brynjar Kristmundsson aðstoðuðu Jón Þór.

Olgeir Sigurgeirsson, Hákon Ernir Haraldsson og Brynjar Kristmundsson aðstoðuðu Jón Þór.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það kom Jóni á óvart þegar Hrannar Bogi hætti hjá Stjörnunni.

Það kom Jóni á óvart þegar Hrannar Bogi hætti hjá Stjörnunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

 En ég gerði þeim það alveg ljóst frá fyrsta degi að til þess að geta titlað sig sem toppklúbb á Íslandi þá yrðu þessir hlutir að vera í lagi.

En ég gerði þeim það alveg ljóst frá fyrsta degi að til þess að geta titlað sig sem toppklúbb á Íslandi þá yrðu þessir hlutir að vera í lagi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Egill Atlason er sjúkraþjálfari Stjörnunnar.

Egill Atlason er sjúkraþjálfari Stjörnunnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.