24.08.26 - 12:35
Elvar Geir Magnússon
Jón Þór: Þarf illan hug til að búa til svona ljótar sögur
Segir klár mistök að hafa tekið við Stjörnunni

Jón Þór Hauksson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Þór Hauksson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég finn það bara nánast frá fyrsta degi að ég er ekki velkominn. Í umhverfinu öllu. Innan félagsins þá finn ég það mjög fljótlega að hjá einhverjum hluta fólksins er ég strax málaður upp sem vondi kallinn í þessu," segir Jón Þór Hauksson, í viðtali við Rás 2.
Jón Þór var rekinn frá Stjörnunni í síðustu viku, aðeins 68 dögum eftir að hafa verið ráðinn. Ýmsar sögusagnir hafa verið í kringum þjálfaraskiptin og fór Jón Þór yfir þær í viðtali við Gunnlaug Jónsson.
„Þetta verður náttúrulega bara og við skulum bara orða hlutina alveg eins og þeir eru. Þegar þjálfaraskiptin eru gerð er það bara eitt allsherjar fíaskó. Það er bara illa staðið að þeim þjálfaraskiptum. Það er ekkert nóg bara að henda einhverjum einum manni út og allt lagist."

TENGT EFNI
Jón Þór rekinn frá Stjörnunni (Staðfest)
Skammarlegt fyrir félagið
Meðal kjaftasagna sem hafa verið að ganga er að Jón Þór hafi ekki sinnt starfinu af heilum hug, misst út æfingar og mætt í annarlegu ástandi á æfingu.
„Ég er með undirliggjandi veikindi og hef átt í erfiðleikum með magann á mér. Það er eitthvað sem ég erfði frá föður mínum heitnum. Ég er veikur fyrir í maga og með magasár og bólgur," segir Jón Þór.
„Það er náttúrlega ótrúlegt að þessu sé snúið upp í bara ljótar sögur. Það er auðvitað bara skammarlegt fyrir félagið að minn heiður og mín heilindi séu dregin í efa í starfi. Það þarf illan hug til að búa til svona sögur upp úr þessu. Það er alveg ljóst að það eru einhverjir aðilar innan Stjörnunnar sem eru tilbúnir til þess."
Jón Þór segir ljóst að sögusagnirnar komi innan félagsins. „Það er enginn utan Stjörnunnar sem veit af þessum fjarvistum. Ég veit ekki hvaða ástæða ætti að vera fyrir því að menn viti hvenær nákvæmlega ég er fjarverandi af þessum æfingum."
Eitrað andrúmsloft í félaginu
Í viðtalinu segir Jón Þór þá að hann hafi ekki fengið að velja sér aðstoðarmann í verkefnið og hafi ekki fengið stuðning við þær hugmyndir sem hann vildi. Það hafi verið mistök að taka við liðinu, andrúmsloftið innan félagsins sé neikvætt.
„Það voru klár mistök hjá mér að taka við Stjörnunni en sennilega mistök sem ég myndi gera aftur og aftur. Mig óraði ekki fyrir stöðunni sem var komin upp í klúbbnum. Það er öllum ljóst að það er mikil gjá á milli fólksins í Garðabæ, stuðningsmanna, leikmannahópsins og stjórnar. Það er mikil gjá á milli þessara hópa sem myndar að mörgu leyti eitrað andrúmsloft í félaginu," segir Jón Þór en hér má lesa meira úr viðtalinu.