Siggi Breki stefnir á toppinn: Væri allt annar leikmaður ef ég væri stór

Ég finn sjálfur að ég er klárlega sterkari en ég var í fyrra og er búinn að þroskast mikið.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Lagði upp þrjú mörk í leiknum í gær.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Þetta er bara þvæla

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Úr leiknum í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Ég nýti það sem styrkleika

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Orri Hrafn bendir á Sigga Breka eftir markið.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Krummi erfiðasti andstæðingur á æfingu.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Ég finn sjálfur að ég er klárlega sterkari en ég var í fyrra og er búinn að þroskast mikið.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik
Sigurður Breki er fæddur árið 2009 og verður 17 ára í desember. Hann vakti fyrst athygli í fyrra vor þegar hann kom óvænt inn í lið KR gegn Val í Bestu deildinni.
Hann lagði upp þrjú mörk í gær fyrir liðsfélaga sína og ræddi við Fótbolta.net í dag.

Óskar Hrafn: Þó Aron gæti verið pabbi Sigga Breka þá eru þetta frábærir leikmenn
„Það var geggjað að spila leikinn, ég var smá stressaður fyrir leikinn, langt síðan ég hef spilað, en síðan fór stressið úr mér einmitt þegar leikurinn byrjaði. Ég spilaði með gleði og mér leið mjög vel með mína frammistöðu," segir Siggi Breki.
„Ég er búinn að horfa á þetta aftur, hælsendingin á Orra Hrafn er uppáhaldssendingin, líka allt spilið, það var allt fallegt við þetta mark."
Mörkin má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Er eitthvað sérstakt hlutverk sem þú áttir að sinna í gær? „Það var bara að vera ég sjálfur."
„Hann er bara þvælugóður"
Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, skoraði þrennu í gær og Siggi lagði upp tvö af þeim. Hvað er hægt að segja um Aron?
„Þetta er bara þvæla. Á sínum degi, eins og hann er oftast, þá er hann óstöðvandi. Maður hefur séð það leik eftir leik og æfingu eftir æfingu. Hann er bara þvælugóður," segir Siggi Breki.
Það á meira eftir að koma
Siggi var spurður almennt út í tímabilið hjá KR til þessa. Liðið situr í 2. sæti og er átta stigum frá toppliðinu.
„Þetta er búið að vera rosalega gott tímabil hjá okkur í KR. Við erum búnir að taka miklum framförum frá síðasta ári og við erum ekki búnir á tímabilinu. Það á meira eftir að koma."
KR er í toppbaráttu, framundan er leikur á móti Víkingi sem er á toppnum.
„Það er spenna, þessi Víkingsleikur verður mjög mikilvægur, við munum undirbúa okkur vel fyrir hann og við mætum sterkir og klárir í hann."
Orðinn sterkari en fyrir ári
Þú persónulega, gerðir þú eitthvað í vetur eða þegar leið á síðasta ár sem þér finnst hafa hjálpað þér?
„Ég bara borðaði meira og vann í hugarfarinu, það breyttist líka. Ég æfði, borðaði vel og hélt betur haus, varð yfirvegaðri ef svo má segja. Ég finn sjálfur að ég er klárlega sterkari en ég var í fyrra og er búinn að þroskast mikið."
Græðir mikið á því að æfa með Arnóri og Aroni
Eru einhverjir leikmenn í hópnum sem hafa hjálpað þér meira en aðrir með leiðbeiningum?
„Maður græðir ekkert eðlilega mikið á því að æfa með Aroni Sig og Arnóri Ingva. Arnór segir manni mjög mikið og vel til, og segir það á uppbyggilegan hátt."
Stefnir á toppinn
Ertu með atvinnumannadrauma á bakvið eyrað?
„Já, svo sannarlega. Ég stefni bara alveg á toppinn, draumurinn er að spila með Barcelona og í Premier League."
Hefur þú farið erlendis á reynslu eða veistu til þess að erlend félög eru að fylgjast með þér?
„Ég hef ekkert farið út á reynslu, ég veit að það eru einhver félög að fylgjast með mér, en ég veit ekki nákvæmlega hver."
Ekkert eðlilega erfitt að eiga við Krumma
Er einhver sem kemur upp í hugann sem erfiðasti andstæðingur á æfingum?
„Ég myndi segja Krummi (Hrafn Tómasson). Hreyfingarnar hans, þegar maður er að dekka hann á miðjunni, það er ekkert eðlilega erfitt að eiga við hann. Hann les leikinn mjög vel."
Hefur lært hvernig hann á að nýta það að vera lítill
Varðandi stærðina, reynir þú að nýta hana sem styrkleika varðandi að koma mönnum á óvart?
„Já, ég hef lifað með þessu allt mitt líf, hef alltaf verið langminnstur af öllum, bæði í fótbolta og af vinum mínum. Ég hef lært svolítið á hvernig ég á að nýta það að vera lítill. Ég nýti það sem styrkleika. Ég væri allt annar leikmaður ef ég væri stór," segir KR-ingurinn að lokum.
Siggi væri eflaust til í að hafa spilað meira á þessu tímabili en höfuðhögg í vor setti strik í reikninginn. Þá er hann í harðri samkeppni við mínútur í liðinu við leikmenn eins og Arnór Ingva Traustason og Orra Hrafn Kjartansson sem báðir hafa verið frábærir á tímabilinu. Leikurinn í gær var fyrsti byrjunarliðsleikurinn síðan í maí.
Siggi hefur skorað tvö mörk og lagt upp fjögur í tíu leikjum í Bestu deildinni á þessu tímabili.

Lagði upp þrjú mörk í leiknum í gær.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Þetta er bara þvæla

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Úr leiknum í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Ég nýti það sem styrkleika

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Orri Hrafn bendir á Sigga Breka eftir markið.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Krummi erfiðasti andstæðingur á æfingu.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

