Anna María: Er öll að koma til
Auglýsing

Anna María fyrirliði var komin aftur í byrjunarlið Stjörnunnar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Mér fannst við kannski ekki ná að tengja varnarleikinn nóg. Við vorum svolítið að verjast einar, það var ekki næg hjálparvörn og þannig. Svo fáum við ágætis færi, ekki mörg, en góð færi sem við hefðum getað klárað betur,“</i> sagði Anna María Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, í samtali við Fótbolta.net eftir 3-1 tap gegn Fylki fyrr í kvöld.
Stjarnan hefur aðeins unnið einn af síðustu níu deildarleikjum og Anna María viðurkennir að það taki á.
„Það er erfitt. Sérstaklega þar sem við erum ekkert að spila verr en hin liðin, við fáum líka færi eins og þau. En stemmningin er fín. Þetta er þéttur hópur en við verðum að fara að vinna leiki.“
Anna María hefur verið að glíma við meiðsli í sumar og hefur bara spilað 5 deildarleiki. Hún spilaði síðast þann 15. júlí en var komin aftur í byrjunarlið Stjörnunnar í kvöld.
„Það kemur alltaf eitthvað nýtt og nýtt. Þegar eitt lagast byrjar eitthvað annað en ég er öll að koma til,“ svaraði Anna María aðspurð um stöðuna á meiðslunum.
Hægt er að horfa á allt viðtalið við hana í spilaranum hér að ofan.