Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 09. ágúst 2020 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þorsteinn Örn aftur í KR - Spilaði einn leik með HK
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorsteinn Örn Bernharðsson er kominn aftur í KR eftir að hafa verið í láni hjá HK síðan í júní.

Þorsteinn kom aðeins við sögu í einum leik með HK en sá leikur var í Mjólkurbikarnum gegn Magna. Hann hefur verið á bekknum í síðustu deildarleikjum í Pepsi Max-deildinni en ekki spilað.

Þorsteinn er vinstri bakvörður sem getur einnig leikið ofar á vellinum. Hinn tvítugi Þorsteinn var á láni hjá Þrótti og Haukum á síðasta tímabili en hann spilaði þá sextán leiki í Inkasso-deildinni.

HK er í tíunda sæti Pepsi Max-deildarinnar en KR er í öðru sæti, tveimur stigum frá toppnum og með leik til góða á topplið Vals.

Ekki er spilaður fótbolti á Íslandi þessa stundina. Kappleikjum hefur verið frestað til 13. ágúst að minnsta kosti vegna kórónuveirufaraldursins.
Athugasemdir
banner
banner