Fotbolti.net
09.10.21 - 18:56
Victor Pálsson

Myndband: Markmaður Wales með skelfileg mistök

Myndband: Markmaður Wales með skelfileg mistök
Canon

Mynd: EPA

Markvörðurinn Danny Ward gerði ansi slæm mistök í gær er Wales og Tékkland áttust við í undankeppni HM.
Wales komst yfir með marki frá Aaron Ramsey á 36. Mínútu en Tékkar náðu að jafna metin áður en flautað var til hálfleiks.

Snemma í seinni hálfleik fékk Ward sendingu til baka frá einmitt Ramsey en missti algjörlega stjórn á boltanum sem endaði í netinu.

Mistökin voru ansi vandræðaleg fyrir þennan annars ágæta markmann en hann fékk þó klapp á bakið frá stuðningsmönnum eftir leik.

Daniel James tókst að bjarga stigi fyrir Wales með marki á 69. Mínútu og lokastaðan í þessum leik, 2-2.

Hér má sjá mistök Ward.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.