Fotbolti.net
09.11.19 - 19:20
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson

England: Vardy og Maddison sáu um Arsenal

Jamie Vardy kom Leicester yfir í leiknum, James Maddison skoraði annað markið.

Jamie Vardy kom Leicester yfir í leiknum, James Maddison skoraði annað markið.

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Leicester City 2-0 Arsenal</b>
1-0 Jamie Vardy ('68 )
2-0 James Maddison ('75 )
Það fór fram stórleikur á King Power vellinum í Leicester í kvöld þegar heimamenn tóku á móti Arsenal. Fyrir leikinn var Leicester í 4. sæti með 23 stig en Arsenal sæti neðar með 17 stig.

Fyrri hálfleikurinn var nokkuð tíðindalítill á King Power vellinum en það dró til tíðinda í seinni hálfleik.

Á 68. mínútu kom fyrsta mark leiksins þegar Youri Tielemans kom boltanum til Jamie Vardy sem kom boltanum framhjá Leno í marki Arsenal og staðan orðin 1-0 fyrir heimamönnum.

Eftir að hafa unnið boltann við miðju vallarins sóttu Leicester menn hratt á Arsenal sem endaði með því að James Maddison hamraði boltanum í netið og staðan því orðin 2-0. Aðeins liðu sjö mínútur á milli markanna.

Niðurstaðan 2-0 sigur Leicester. Þetta er fjórði sigurleikur Leicester í deildinni í röð, þeir sitja nú í 2. sæti með 26 stig. Arsenal hefur hins vegar ekki náð í sigur í síðustu fjórum deildarleikjum og pressan á Unai Emery orðin mikil.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.