09.11.26 - 12:42
Elvar Geir Magnússon
Burn inn í landsliðshópinn í staðinn fyrir meiddan Guehi

Dan Burn kemur inn í landsliðið.

Mynd: EPA

Marc Guehi.

Mynd: EPA

Dan Burn kemur inn í landsliðið.

Mynd: EPA
Dan Burn, varnarmaður Newcastle, hefur verið kallaður inn í enska landsliðshópinn fyrir leiki gegn Króatíu og Spáni í Þjóðadeildinn. Kemur hann í stað varnarmannsins Marc Guehi, leikmanns Manchester City, sem hefur dregið sig úr hópnum vegna meiðsla í mjöðm.

TENGT EFNI
Bellingham bræður í enska landsliðshópnum
Guehi var tekinn af velli í hálfleik í tapleik Manchester City gegn Nottingham Forest á laugardaginn. Enzo Maresca sagði eftir leikinn að miðvörðurinn hefði sjálfur óskað eftir því að fara af velli vegna meiðslanna.
Þessi fyrrverandi fyrirliði Crystal Palace hefur verið fastamaður í liði Thomas Tuchel síðan hann tók við sem landsliðsþjálfari Englands í janúar 2025.
Guehi var í byrjunarliðinu í öllum leikjum Englands á heimsmeistaramótinu, að undanskildum einum, og spilaði alla fjóra leiki liðsins í Þjóðadeildinni í september og október.
Burn hefur leikið 11 landsleiki og var einnig hluti af hópi Tuchels á heimsmeistaramótinu, þar sem hann kom tvisvar inn á sem varamaður.
England mætir Króatíu á Wembley á fimmtudaginn, áður en haldið verður til Madrídar til að mæta heimsmeisturum Spánar á laugardaginn.