Luis Díaz er að fljúga til baka til Liverpool frá æfingabúðum Liverpool í Dúbaí. Díaz var að vinna að endurkomu eftir hnémeiðsli en fékk bakslag.
Díaz hefur verið fjarri góðu gamni frá því hann meiddist í leik gegn Arsenal fyrir tveimur mánuðum síðan.
Díaz hefur verið fjarri góðu gamni frá því hann meiddist í leik gegn Arsenal fyrir tveimur mánuðum síðan.
Díaz þurfti ekki að fara í aðgerð og hafði verið í endurhæfingu bæði í heimalandinu Kólumbíu og á æfignasvæði Liverpool. Svo fór hann með hópnum til Dúbaí og átti að snúa aftur á völlinn þegar Liverpool mætir Lyon og AC Milan í æfingaleikjum.
Meiðsli Díaz verða metin við komuna til Liverpool. Ólíklegt er að hann verði klár í fyrsta leik Liverpool eftir HM hlé. Sá leikur er gegn Manchester City í deildabikarnum þann 22. desember. Að svo stöddu er óvíst hversu lengi vængmaðurinn verði frá.
Athugasemdir