16.09.26 - 17:00
Elvar Geir Magnússon
Mikil líkindi með Dowman og Yamal

Dowman líður vel í sviðsljósinu.

Mynd: EPA

Yamal og Merino fallast í faðma.

Mynd: EPA

Dowman líður vel í sviðsljósinu.

Mynd: EPA
Mikel Merino segir að Max Dowman minni sig á Lamine Yamal en þessi 16 ára leikmaður Arsenal skoraði tvisvar í 4-2 sigri gegn Ipswich í deildabikarnum.
Dowman er gríðarlega spennandi leikmaður en Mikel Arteta, stjóri Arsenal, segir að það þurfi að meðhöndla spiltíma hans rétt til að passa upp á framþróun hans.
Merino, sem skoraði líka gegn Ipswich, líkir Dowman við Yamal, samherja sinn í spænska landsliðinu.

TENGT EFNI
Fær veglegt hrós frá Arteta
„Það eru nokkur líkindi með karakterum þeirra. Þeim er sama þó þeir séu í sviðsljósinu, þeir standa sig best þegar pressan er sem mest. Þeir eru alltaf tilbúnir í áskoranir og eru ekki feimnir við neitt, þar á meðal að mæta þeim bestu. Það eru mikil líkindi með þeim," segir Merino.
„Max Dowman er ótrúlega hæfileikaríkur. Alltaf þegar hann fer inn á völlinn þá gerir hann gæfumun. Hann hefur svakalega hæfleika og við verðum að passa vel upp á hann. Við þurfum að halda honum á tánum, hann þarf að halda áfram að læra og vera með augun og eyrun alltaf opin. Það er enn svigrúm fyrir hann að bæta sig á ýmsum sviðum og hann veit það. Við hjálpum honum að verða eins góður og hægt er."
„Það á við um Max og Lamine að þó þeir séu með þessa hæfileika þá eru þeir líka auðmjúkir. Þeir vilja alltaf læra og hlusta á þá sem eru aldri. Það er ómetanlegt."