10.09.22 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Andlát drottingar hefur áhrif á getraunir


Mynd: 1X2


Mynd: 1X2
Vegna andláts Englandsdrottningar hefur öllum leikjum í ensku úrvalsdeildinni verið frestað.
Því hefur verið ákveðið að búa til nýjan getraunaseðil fyrir laugardaginn og fella getraunaseðilinn með ensku leikjunum úr gildi.
Þeir tipparar sem tippuðu fyrr í vikunni á seðilinn sem felldur hefur verið úr gildi, fá ágiskun sína endurgreidda á spilareikning sinn og þeir sem hafa keypt getraunaseðil á sölustöðum fyrr í vikunni, fá hann endurgreiddan í næstu viku, á sölustað eða hjá Íslenskum getraunum, Engjavegi 6.
