Fotbolti.net
02.10.26 - 20:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Þjóðadeildin: Rautt spjald og glæsilegt mark í Frakklandi

Þjóðadeildin: Rautt spjald og glæsilegt mark í Frakklandi
Canon

Mynd: EPA

Frakkland fékk Ítalíu í heimsókn í stórleik í Þjóðadeildinni í kvöld. Ítalía fékk betri tækifæri í fyrri hálfleik en staðan var markalaus að loknum 45 mínútum.

Frakkar sóttu í sig veðrið í seinni hálfleik og Michael Olise kom þeim yfir með glæsilegu marki úr aukaspyrnu, sláin inn.
Alessandro Bastoni jafnaði metin eftir vandræðagang hjá Frökkum. Adrien Rabiot átti sendingu inn á miðjuna á Lucas Da Cunha. Hann náði ekki nægilega góðum tökum á boltanum og Bastoni pressaði vel og skoraði.

Dayot Upamecano nældi í sitt annað gula spjald og þar með rautt fyrir brot á Moise Kean undir lokin. Eduardo Camavinga var nálægt því að tryggja Frökkum sigurinn en Gianluigi Donnarumma varði skotið frá honum frábærlega.

Ítölum tókst ekki að nýta sér liðsmuninn og jafntefli var niðurstaðan.

Kevin De Bruyne var í stuði þegar Belgía fékk Tyrkland í heimsókn. Hann kom sér inn á teiginn eftir spil við Dodi Lukebakio og kom Belgíu yfir.

De Bruyne bætti síðan öðru markinu við eftir klukkutíma leik með laglegu skoti fyrir utan teiginn. Hann nældi sér síðan í gult spjald og verður í banni í næsta leik á útivelli gegn Frökkum.

Romelu Lukaku innsiglaði sigurinn þegar hann skoraði eftir sendingu frá Charles De Ketelaere. Frakkar eru á toppnum með sjö stig, Belgía í 2. sæti með sex, Ítalía í 3. sæti með fjögur og Tyrkland á botninum án stiga.

Robert Lewandowski skoraði þrennu í stórsigri Póllands gegn Rúmeníu í B-deild. Viktor Gyökeres var á skotskónum fyrir Svíþjóð í jafntefli gegn Bosníu og Hersegóvínu. Svíþjóð er á toppnum með sjö stig, Bosnía í 2. sæti meeð fimm stig, Pólland með fjögur og Rúmenía án stiga.

Milos Kerkez var hetja Ungverja í sigri á Georgíu. Þá vann Norður-Írland öruggan sigur á Úkraínu. Norður-Írland er á toppnum með sjö stig, ÚKraína í 2. sæti með fjögur, Ungverjaland einnig með fjögur og Georgía með eitt stig.

Gunnar Vatnhamar varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark í jafntefli Færeyja gegn Slóvakíu í C-deld. Moldóva lagði Kasakstan í sama riðli fyrr í dag. Slóvakía er á toppnum með sjö stig, Moldóva er í 2. sæti með fjögur, Færeyjar með þrjú og Kasakstan eitt stig.

Þá hafði Kýpur betur gegn Armeníu og Svartfjallaland vann Lettland. Svartfjallaland er á toppnum með níu stig, Kýpur með fjögur, Armenía þrjú og Lettland með eitt stig.

A-deild
Belgía 3 - 0 Tyrkland
1-0 Kevin De Bruyne ('10 )
2-0 Kevin De Bruyne ('59 )
3-0 Romelu Lukaku ('76 )

Frakkland 1 - 1 Ítalía
1-0 Michael Olise ('55 )
1-1 Alessandro Bastoni ('68 )
Rautt spjald: Dayot Upamecano, France ('85)

B-deild

Bosnía og Hersegóvína 1 - 1 Svíþjóð
0-1 Viktor Gyokeres ('61 )
1-1 Kerim Alajbegovic ('80 )

Ungverjaland 1 - 0 Georgía
1-0 Milos Kerkez ('35 )

Pólland 6 - 0 Rúmenía
1-0 Robert Lewandowski ('24 , víti)
2-0 Robert Lewandowski ('47 )
2-1 Virgil Ghita ('49 , sjálfsmark)
3-1 Piotr Zielinski ('62 )
4-1 Jan Bednarek ('66 )
5-1 Robert Lewandowski ('86 )
Rautt spjald: Radu Dragusin, Romania ('22)

Úkraína 0 - 3 Norður-Írland
0-1 Ciaron Brown ('9 )
0-2 Isaac Price ('22 )
0-3 Ciaron Brown ('61 )

C-deild

Kasakstan 1 - 2 Moldóva
0-1 Nicky Clescenco ('45 )
0-2 Petru Popescu ('50 )
1-2 Nuraly Alip ('64 )

Kýpur 2 - 0 Armenía
1-0 Leonidas Konomis ('19 )
2-0 Andronikos Kakoullis ('31 )
Rautt spjald: Kostas Pileas, Cyprus ('52)

Lettland 1 - 2 Svartfjallaland
0-1 Vasilije Adzic ('3 )
0-2 Vasilije Adzic ('56 )
1-2 Markuss Strods ('82 )

Færeyjar 1 - 1 Slóvakía
1-0 Gunnar Vatnhamar ('38 , sjálfsmark)
2-0 Adrian Justinussen ('66 )
Þjóðadeildin: Rautt spjald og glæsilegt mark í Frakklandi
Canon

Mynd: EPA

Þjóðadeildin: Rautt spjald og glæsilegt mark í Frakklandi
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.