Stefán Teitur gæti komið við sögu gegn Búlgaríu

Stefán Teitur Þórðarson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Arnar Gunnlaugsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel Tristan Guðjohnsen

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stefán Teitur Þórðarson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Íslenski landsliðshópurinn er aðeins breyttur frá síðasta leik, en Kristall Máni Ingason meiddist og Daníel Tristan Guðjohnsen kom inn í hópinn í staðinn. Hann verður þó aðeins með gegn Búlgaríu á morgun og fer svo aftur í U21 hópinn. Stefán Teitur Þórðarson meiddist einnig í síðasta leik, en hann gæti verið tilbúinn í einhverjar mínútur á morgun.
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari var spurður út í stöðuna á hópnum fyrir leikinn á morgun, á fréttamannafundi í dag.

Líklegt byrjunarlið Íslands - Hræringar í vörninni?
„Staðan á Stefáni er betri en við þorðum að vona, hann æfði aðeins einn núna og fór ekki beint í einhverja hrikalega erfiða æfingu, en nóg til þess að sannfæra okkur um að mögulega gæti hann verið klár í einhverjar mínútur á laugardaginn. Ef ekki þá sannarlega á móti Eistlandi á þriðjudaginn. Kristall þarf því miður að fara heim, var búinn að eiga mjög flotta æfingaviku í aðdraganda fyrsta leiksins og kom inn á í þeim leik og stóð sig mjög vel. Leikur þrjú og það er farið að reyna á menn, við erum búnir að vera saman í heila eilífð og það reynir á sambandið í hópnum. Við höfum unnið hart að því síðustu árin með því að spila marga sterka æfingaleiki og leyft mörgum leikmönnum að fá mínútur. Þannig við erum tílbúnir að rótera liðinu og ég treysti hópnum fullkomlega. Leikmenn eru laskaðir og þreyttir en svo kemur adrenalínið á leikdegi, og þú færð að heyra köllin frá þínu fólki sem ýtir þér aðeins yfir síðustu metrana," sagði Arnar.
Daníel svarað kallinu vel
Daníel hefur verið að spila mjög vel með U21 landsliðinu sem hefur heillað Arnar.
„Þetta hefur tekist vel það sem við höfum rætt innanbúðar hjá KSÍ, mikið samráð með hvort Daníel ætti að vera með okkur eða taka slaginn með U21 árs landsliðinu. Hann er búinn að svara kallinu mjög vel, og gerði það líka í síðasta glugga. Sýndi mikinn karakter, og mikinn þroska að mæta með sýnum félögum, og vera ekki of merkilegur til þess að vinna ekki ákveðna skítavinnu. Hann hefur fengið sjálfstraust og þess vegna er hann með okkur núna. Ég hef alltaf sagt ef hann fer niður (í U21) þá á hann að líta á sig sem A-landsliðs mann og sýna hversu sterkur og öflugur hann er, og hversu langt hann er kominn. Svo mætir hann með okkur núna og vonandi getur hann hjálpað okkur núna á laugardaginn, ég hef enga trú á öðru. Svo fer hann aftur út til móts við U21 árs landsliðið, því það er hrikalega mikilvægt verkefni sem býður þeirra að tryggja sér sæti á móti," sagði Arnar.
Það er afar ólíklegt að Daníel verður með A-liðinu í síðasta leiknum í glugganum. En ef það skyldu fleiri meiðast er það möguleiki.
„Ekki nema eitthvað stórkostlegt gerist á laugardaginn með meiðsli leikmanna. Ég held að þetta hefur verið frábær saga með U21 árs liðið hingað til og okkur líður þannig að okkur finnst það mikilvægt fyrir þá að tryggja sér sæti í loka keppni. Daníel er náttúrulega stór partur af því liði. Talandi við hann og láta vita af þessari aðstöðu, það er ekkert mál. Hann er það sterkur karakter, og þetta er hluti af hans þroska og vegferð sem leikmanns," sagði Arnar.

Arnar Gunnlaugsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel Tristan Guðjohnsen

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

