Fotbolti.net
02.10.26 - 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Framherji Real Madrid fær kallið í spænska landsliðið

Framherji Real Madrid fær kallið í spænska landsliðið
Canon

Mynd: EPA

Carlos Espi, framherji Real Madrid, hefur verið færður úr U21 landsliði Spánar upp í aðalliðið.

Espi kemur inn í hópinn fyrir Ferran Torres sem er meiddur á ökkla. Torres var í byrjunarliðinu í fyrsta leiknum gegn Englandi en kom ekkert við sögu gegn Króatíu.
Espi er 21 árs og gekk til liðs við Real Madrid frá Levante í sumar. Hann hefur skorað tvö mörk í fjórum leikjum í spænsku deildinni á tímabilinu.

Hann átti stórleik í 13-0 sigri U21 landsliðsins gegn San Marínó í gær. Hann skoraði fjögur og lagði upp tvö.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.