Einar eftir fallið: Við eigum saman að drulla þessu liði upp

Einar Guðnason þjálfari Víkings telur engan geta firrað sig ábyrð og biðlar til þeirra sem koma að liðinu að vera áfram og rífi þetta upp aftur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Einar Guðnason þjálfari Víkings telur engan geta firrað sig ábyrð og biðlar til þeirra sem koma að liðinu að vera áfram og rífi þetta upp aftur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Einar Guðnason, þjálfari Víkings, tók ábyrgð á falli liðsins eftir 2-0 tap gegn Þór/KA í kvöld. Hann sagðist tilbúinn að halda áfram ef félagið vildi það og taldi alla sem kæmu að liðinu skulda Víkingi að hjálpa því aftur upp.
„Öll sem komum að þessu liði skuldum félaginu. Það er eins gott að allir sem félagið vill hafa hér áfram standi sig og rífi þetta aftur upp. Það getur enginn firrt sig ábyrgð á þessu, ekki nokkur maður, ekki ég,“ sagði Einar í viðtali við Fótbolta.net.
„Ef félagið vill hafa mig þá er ég áfram. Ef ekki þá fer ég. Það sama ætti að gilda um alla sem koma að þessu liði. Við eigum saman að drulla þessu liði upp. Það er ekkert annað í stöðunni.“
Spurður um fyrstu viðbrögðin við fallinu var svarið stutt.
„Bara eins ömurleg og hægt er.“
Einar taldi Víking hafa verið meira með boltann í leiknum en liðinu hefði gengið illa að skapa góð færi.
„Þetta var kannski ekki fallegasti fótboltaleikur í heimi. Mér fannst við kannski stjórna honum með boltann án þess að skapa okkur eitthvað almennilegt. Við vorum ekki að ná að fá opin færi inni í teig, sem var ekki gott.“
Þegar hann horfði yfir tímabilið sagði hann liðið fyrst og fremst ekki hafa spilað nógu vel. Mistök hefðu verið gerð í aðdraganda mótsins og skortur á stöðugleika kostað stig.
Hann nefndi einnig mistök dómara og sagðist hafa fengið afsökunarbeiðnir sem hann hefði frekar viljað fá stig í staðinn fyrir. Það væri þó ódýrt að kenna dómgæslunni um niðurstöðuna.
„Í öllum þeim leikjum sem dómarar höfðu einhver áhrif á úrslitin fengum við færi til að klára það sjálfar og gerðum það ekki. Við fengum líka sénsa til að gera betur varnarlega.“
„Ég lagði kannski marga leiki ekki nógu vel upp og gerði lélegar skiptingar. Á endanum skrifast þetta væntanlega á mig.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.
