Fotbolti.net
02.10.26 - 20:22
Víðir Sigurðsson

Víðir Sig: Sögulegt fall Valskvenna

Valur og Víkingur féllu saman úr Bestu deildinni í kvöld.

Valur og Víkingur féllu saman úr Bestu deildinni í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur er fallinn úr Bestu deild kvenna og þar með er sögulega langri og samfelldri dvöl félagsins í efstu deild lokið því þetta var fimmtugasta tímabil Vals í röð frá því Hlíðarendafélagið lék þar fyrst árið 1977.

Árangur liðsins á þessu ári er sá slakasti í sögunni því aldrei áður hefur lið Vals verið í fallbaráttu, og aldrei áður endað utan efstu sjö sætanna í deildinni.

Valur er annað sigursælasta félag landsins í kvennafótboltanum því á þessum fimmtíu árum hefur liðið fjórtán sinnum orðið Íslandsmeistari, síðast árið 2023, og aðeins Breiðablik hefur unnið deildina oftar.

Þá hefur Valur unnið bikarkeppnina oftast allra félaga, fimmtán sinnum, og síðast árið 2024, en Breiðablik kemur næst með fjórtán sigra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.