02.10.26 - 16:50
Elvar Geir Magnússon
Mikið rætt um City málið innan enska landsliðsins

Tuchel ræðir við leikmenn sína.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Tuchel ræðir við leikmenn sína.

Mynd: EPA
Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, segir að mál Manchester City sé stórt umræðuefni innan leikmannahópsins.
Enski hópurinn er í Rijeka í Króatíu að búa sig undir leik gegn heimamönnum sem fram fer á morgun.

TENGT EFNI
Bara skólabörn á leik Englands og Króatíu
„Við höfum fengið smá frítíma milli leikja og það er mikið rætt um Manchester City. Það eru allir að tala um þetta og sem betur fer er ekki þörf á fleiri röddum í umræðuna. Ég er ánægður með að vera ekki ein af þessum röddum," segir Tuchel.
„Enginn þarf að vita mína þekkingu á þessu máli, sem er ekki mikil. Auðvitað eru leikmenn að ræða þetta sín á milli."
Eins og lesendur vita er búið að dæma Manchester City sekt um brot á fjárhagsreglum. Hinsvegar er ekki komið í ljós hvaða refsingar félagið mun fá. Mögulega fer liðið niður í neðri deildir.
Tuchel var á fréttamannafundi spurður út í það hvort það kæmi til greina í hans huga að velja leikmenn í landsliðið sem ekki spila í efstu deild?
„Það er alltaf möguleiki. Ég reyni alltaf að setja saman besta hópinn hverju sinni. Ég útiloka aldrei leikmenn þó þeir spili ekki í efstu deild í sínu landi, það þarf að skoða hvert tilfelli fyrir sig," segir Tuchel.