02.10.26 - 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Pickford: Ég vil alltaf vera númer eitt

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Jordan Pickford, landsliðsmarkvörður Englands, segist ekki vera hræddur við samkeppni.
James Trafford hefur spilað síðustu tvo leiki í Þjóðadeildinni en Pickford mun spila næstu tvo. Pickford hefur verið aðalmarkvörður landsliðsins undanfarið og var í liðinu á HM.

„Ég elska ekkert meira en samkeppni. Ég gef enskum markvörðum hrós, maður sér miklu fleiri enska markmenn vera að spila," sagði Pickford.
„Auðvitað vil ég alltaf vera númer eitt. Ég held alltaf áfram að leggja hart að mér. Ég hef alltaf sagt að ég vilji alltaf gera betur og bæta mig á sviðum sem ég tel mig þurfa að bæta mig. Hvort sem það er á vellinum, í ræktinni eða í höfðinu."