Fotbolti.net
02.10.26 - 20:58
Snæbjört Pálsdóttir

Arna Sif eftir að sætið var tryggt: Líður eins og ég sé búin að léttast um 15 kíló

Auglýsing
Arna Sif segir sætið í Bestu deildinni hafa mikla þýðingu fyrir kvennaboltann á Akureyri.

Arna Sif segir sætið í Bestu deildinni hafa mikla þýðingu fyrir kvennaboltann á Akureyri.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

Arna Sif Ásgrímsdóttir, fyrirliði Þórs/KA, fann til mikils léttis eftir 2-0 sigur á Víkingi í kvöld sem tryggði liðinu áframhaldandi veru í Bestu deild kvenna. Stoltið var þó í bland við vonbrigði með tímabilið.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 0 - 2 Þór/KA

„Mér líður smá eins og ég hafði verið að vinna íslandsmeistaratitil, það er númer eitt.“ 

„Númer tvö þá ætla ég að leyfa mér að segja bara allar heimsins tilfinningar. Í fyrsta lagi er ég bara ógeðslega stolt af liðinu og hvernig við komum inn í þennan leik. Við vorum ósáttar eftir síðasta leik og mér fannst svarið frábært. Mér er mjög létt. Mér líður eins og ég sé búin að léttast um svona 15 kíló á síðustu tíu mínútum.“ sagði Arna Sif í viðtali við Fótbolta.net.

„Líka hellast yfir mann smá vonbrigði með hvernig tímabilið spilaðist. Mér finnst við eiga alltof gott lið, þegar allt er eins og það á að vera, til þess að vera í þessari stöðu. Það er bara allt í gangi, allar tilfinningar.“


Hún viðurkenndi að vik­an fyrir leik hefði verið erfið en leið vel þegar út á völlinn var komið.

„Þetta er kvíðavaldandi staða og það væri skrítið að maður væri ekki stressaður. Það vill enginn falla með félaginu sínu og hvað þá uppeldisfélaginu.“


Hún benti á vinnuna sem liggur að baki starfinu hjá Þór/KA og nefndi meðal annars fjáröflun og klósettþrif.

„Við þurfum að hafa ógeðslega mikið fyrir hlutunum. Þetta er manni ógeðslega kært og þetta hefur svo mikla þýðingu, að mínu mati, fyrir kvennaboltann á Akureyri að vera með lið í efstu deild.“


Þegar út á völlinn var komið leið fyrirliðanum hins vegar vel. Góð samtöl innan hópsins höfðu hjálpað við undirbúninginn.

„Mér fannst við allar á sömu blaðsíðu. Það var hugur í öllum, mikið hjarta. Mér fannst Víkingur ekki vera að skapa sér mikið. Við vorum að verjast rosalega vel sem lið og svo var bara spurning hvernig við myndum skora.“

Arna vissi ekki hvernig stóð í leik Fram og Vals. Þegar Alli kallaði Möggu aftar á völlinn hélt hún raunar að Valur væri að tapa og Þór/KA væri að þétta raðirnar til að verja jafnteflið. Sú ályktun reyndist röng, en hún sagði liðið hafa einbeitt sér að eigin verkefni.

„Við höfðum ekki hugmynd um það. Það eina sem við hugsuðum um fyrir leikinn var að við treystum á engan nema okkur sjálfar.“


Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.