Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 10. september 2022 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Haaland: Guardiola er fótboltasjúkur eins og ég
Mynd: EPA

Erling Haaland gekk til liðs við Manchester City frá Dortmund í sumar en hann hefur byrjað af krafti í enska boltanum.


Hann er með 10 mörk í fyrstu sex leikjunum í deildinni, þá skoraði hann tvö mörk í 4-0 sigri liðsins á Sevilla í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar í vikunni.

Hann er mjög ánægður að spila undir stjórn Pep Guardiola.

„Hann er fótboltasjúkur eins og ég. Við elskum báðir fótbolta, hann var leikmaður og er nú stjóri. Hann dýrkar fótbolta og ég hef gaman af því, því hann hugsar um allt sem tengist fótbolta og hvernig við getum gert hlutina betur," sagði Haaland.


Athugasemdir
banner
banner
banner