Fotbolti.net
10.09.22 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sjáðu magnað sjónarspil á leik PSG og Juve - Stúkan eldrauð

Sjáðu magnað sjónarspil á leik PSG og Juve - Stúkan eldrauð
Canon

Mynd: EPA

Kylian Mbappe var hetja PSG sem tók á móti Juventus í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar í vikunni. Leiknum lauk með 2-1 sigri PSG en Mbappe skoraði bæði mörkin.

Stuðningsmenn PSG bjuggu til magnaða stemningu á vellinum en það náðist myndband af stuðningsmönnunum í stúkunni sem var eldrauð að er virðist þar sem menn voru með mörg blys á lofti.

Lionel Messi naut þess greinilega að sjá þetta þar sem hann bakkaði frá liðsfélögunum sem stilltu sér upp fyrir leikinn, til þess að sjá þetta magnaða sjónarspil.

Myndband af þessu má sjá hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.