Cristiano Ronaldo er ekki í leikmannahópi Manchester United sem mætir Aston Villa á Villa Park í deildabikarnum í kvöld.
Erik ten Hag stjóri liðsins staðfesti að ástæðan væri ekki til að hvíla hann fyrir HM heldur er hann veikur.
United mætir Fulham í síðasta leiknum fyrir HM á sunnudaginn. En Ten Hag sagðist ekki geta svarað því hvort Ronaldo yrði klár í slaginn þá.
Landsliðshópur Portúgal fyrir HM í Katar var opinberaður í kvöld og er Ronaldo á sínum stað.
Athugasemdir