Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
   fim 11. febrúar 2021 22:45
Victor Pálsson
Umboðsmaður Pogba: Ég er hættur að tala
Mynd: Getty Images
Mino Raiola, umboðsmaður Paul Pogba, er hættur að tjá sig um leikmanninn að eigin sögn.

Raiola hefur oft látið út úr sér umdeild ummæli og sagði Pogba vilja komast burt frá Manchester United í desember.

Raioal sagði þá að Pogba væri óánægður í Manchester og að hann þyrfti á nýju liði að halda.

Hollendingurinn var spurður út í framtíð leikmannsins í dag en hann vildi ekki segja mikið að þessu sinni.

„Það þarf að láta Pogba í friði. Þegar ég tala þá verður fók stressað og hann getur ekki sofið á nóttunni. Ég er hættur að tala," sagði Raiola.

„Ég mun gera það sem ég þarf að gera en ekki fyrir framan ykkur. Ég verð í skugganum eins og alltaf."
Athugasemdir
banner
banner