Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 11. maí 2022 22:08
Ívan Guðjón Baldursson
María Catharina í sigurliði - Hallbera Guðný tapaði
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

María Catharina Ólafsdóttir Gros var í byrjunarliði Celtic sem rúllaði yfir Hearts í skoska boltanum í dag.


Charlie Wellings setti þrennu og gerði Olivia Chance tvennu í auðveldum fimm marka sigri.

Celtic siglir lygnan sjó í þriðja sæti skosku deildarinnar eftir sigurinn, með 60 stig eftir 26 umferðir en þó níu stigum frá Glasgow City sem vermir annað sætið.

Celtic 5 - 0 Hearts
1-0 Charlie Wellings ('9)
2-0 Charlie Wellings ('14)
3-0 Olivia Chance ('27)
4-0 Olivia Chance ('37)
5-0 Charlie Wellings ('41)

Hallbera Guðný Gísladóttir lék þá fyrstu 78 mínúturnar er Kalmar tapaði heimaleik í sænska boltanum.

Kalmar tapaði gegn Vittsjö og er í fallsæti, með sex stig eftir átta umferðir.

Kalmar 0 - 1 Vittsjö
0-1 C. Markstedt ('16)


Athugasemdir
banner