Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 11. júní 2019 14:00
Elvar Geir Magnússon
Man Utd vill fá upplýsingar um verðmiðann á Rakitic
Ivan Rakitic.
Ivan Rakitic.
Mynd: Getty Images
Spænskir fjölmiðlar segja að Manchester United hafi sent Barcelona fyrirspurn vegna króatíska miðjumannsins Ivan Rakitic.

Þessi 31 árs leikmaður gekk í raðir Barcelona frá Sevilla 2014 en hann hefur unnið La Liga fjórum sinnum og Meistaradeildina einu sinni með Barcelona.

Spænska blaðið Sport segir að United hafi beðið Barcelona um upplýsingar um verðmiðann á Rakitic.

Barcelona gæti verið tilbúið að selja hann til að aðstoða við að fjármagna kaup á Matthijs de Ligt og Antoine Griezmann.

Rakitic hefur oft sagt að hann sé ánægður hjá Barcelona. Hann er vel launaður hjá félaginu og er ekki tilbúinn að lækka í launum. Talið er að Barcelona sé tilbúið að selja hann fyrir um 50 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner
banner