Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 11. júlí 2020 14:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu brot úr Amazon þáttunum sem Mourinho ætlar ekki að horfa á
Jose Mourinho ræðir við sitt lið.
Jose Mourinho ræðir við sitt lið.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Tottenham, segist ekki ætla að horfa á Amazon þáttaröðina sem var gerð um félagið á þessu tímabili.

Amazon hefur verið að taka það upp sem gerst hefur á bak við tjöldin hjá Tottenham, líkt og var gert hjá Manchester City fyrir tveimur árum. Það verður án efa meira drama í þessari þáttaröð þar sem mikið hefur gerst á þessari leiktíð.

Þar á meðal var Mauricio Pochettino rekinn og Jose Mourinho ráðinn í hans stað. Portúgalski knattspyrnustjórinn er ekki nægilega ánægður með það að myndavélar fylgi liðinu eftir.

„Ef þú spyrð mig hvort ég njóti þess, þá er svarið nei. Mér finnst ekki gaman að vera í raunveruleikaþætti. Ég hef reynt að gleyma því að þeir séu hérna," segir Mourinho.

„Mun ég horfa á þetta? Nei. Það er ekki eitthvað sem ég ætla að gera. Ég veit betur en nokkur annar hvernig dagarnir okkar eru. Ég held samt að þetta verði mjög áhugavert fyrir fólk sem elskar fótbolta og elskar íþróttir."

Hér að neðan má sjá stutt myndskeið, stuttan 'trailer' fyrir þáttaröðina sem kemur út seinna á þessu ári.

Athugasemdir
banner
banner
banner