11.07.21 - 11:20
Brynjar Ingi Erluson
Bíómynd um Zlatan Ibrahimovic frumsýnd í september

Zlatan Ibrahimovic

Mynd: Getty Images

Zlatan Ibrahimovic

Mynd: Getty Images
Bíómyndin Jag är Zlatan verður frumsýnd þann 10. september en hún er byggð á ævi sænska framherjans Zlatan Ibrahimovic.
Bókin um ævi Zlatan kom út árið 2013 og vakti mikla athygli en hann segir frá því hvernig það var að alast upp í Rosengård-hverfinu í Malmö og leið hans til frægðar í fótboltanum.
Nú hefur verið gerð bíómynd sem byggð er á bókinni og verður hún frumsýnd þann 10. september.
Dominic Andersson Bajraktari og Granit Rushiti leika Zlatan í myndinni.
Hægt er að sjá stiklu úr henni hér fyrir neðan.