Fotbolti.net
11.07.26 - 14:34
Brynjar Ingi Erluson

Tuchel hefur ekki fengið skýringar frá FIFA

Tuchel hefur ekki fengið skýringar frá FIFA
Canon

Mynd: EPA

Thomas Tuchel, þjálfari enska landsliðsins, hefur ekki fengið neinar útskýringar frá FIFA eftir að sambandið ákvað að lengja bann varnarmannsins Jarell Quansah úr einum leik í tvo á HM.
Tuchel gagnrýnir dómarana og óskýrt regluverk
TENGT EFNI

Tuchel gagnrýnir dómarana og óskýrt regluverk

Quansah sá rautt í 3-2 sigri Englands á Mexíkó þegar hann fór í hörkutæklingu á Jesus Gallardo í upphafi síðari hálfleiks.

Venjulega fylgir eins leiks bann rauðu spjaldi á HM, en bann Quansah var lengt í tvo leiki þar sem brotið var metið sérstaklega hættulegt.

England getur ekki áfrýjað leikbanninu og því er ljóst að Quansah missir af leiknum gegn Noregi. Hann verður einnig í banni gegn Argentínu eða Sviss komist Englendingar í undanúrslit.

Tuchel var spurður hvort ummæli hans eftir leikinn hefðu haft áhrif á aganefnd FIFA, en hann telur svo ekki vera. Hann segir England þó ekki hafa fengið neinar útskýringar á því hvers vegna bannið var lengt.

„Ég held ekki, en við höfum heldur ekki fengið neinar útskýringar á þessu,“ sagði Tuchel.

Englendingar mæta Norðmönnum klukkan 21:00 í kvöld og verður leikurinn í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.