Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 11. ágúst 2020 09:00
Elvar Geir Magnússon
Arsenal bíður eftir svari frá Real Madrid varðandi Ceballos
Dani Ceballos með FA bikarinn.
Dani Ceballos með FA bikarinn.
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Dani Ceballos er kominn aftu til Real Madrid eftir lánsdvöl hjá Arsenal. Hann hjálpaði Arsenal að vinna FA bikarinn og var í stóru hlutverki undir stjórn Mikel Arteta.

Arsenal vill kaupa leikmanninn en bíður eftir svari frá Real Madrid um framhaldið.

Ekki er vitað hvort hann sé í áætlunum Real Madrid fyrir næsta tímabil en Real Betis hefur mikinn áhuga á honum. Ceballos kom upp úr unglingastarfi Real Betis og hjarta hans slær með félaginu.

„Mér þykir gríðarlega vænt um Betis og alla sem starfa fyrir félagið. Þeir vita um ástina sem ég ber til þeirra. Betis hefur mikla merkingu fyrir mér," sagði Ceballos.

Enskir fjölmiðlar gera mikið úr því að Ceballos hafi verið myndaður í treyju Betis á mánudagskvöld, þegar hann var að spila við vini sína.


Athugasemdir
banner
banner
banner