Matues Mane einn eftirsóttasti bitinn - Everton vill Delap - Tekur Keane við Palace?
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
„Segir ekki nei þegar Víkingur vill fá þig“
„Viljum ekki fylla í hópinn bara með hveiti heldur þurfum við einhver krydd“
Gummi Magg: Erum mættir til að skrifa söguna
Böddi um skiptin óvæntu: Var ekki í tilfinningalegu jafnvægi
Arnór Gauti: Mun aldrei gleyma lokaflautinu á Laugardalsvelli
Sameiningaviðræður ÍR og Leiknis: Sumir láta hreinlega tilfinningarnar ráða
Gylfi Tryggva: Höfum sótt einn leikmann innanlands og það var landsliðsmaður
Óskar Smári: Klúbburinn hefur þróast í rétta átt
Markadrottningin komin heim: Voru möguleikar úti en Breiðablik besti kosturinn
Bragi Karl: Var ekki í hlutverkinu sem ég vildi vera í
Ingi Þór: Engir grínleikmenn að spila í minni stöðu hjá ÍA
   lau 11. september 2021 20:10
Brynjar Ingi Erluson
Brynjar Björn: Hefðum þurft betri frammistöðu frá fleiri leikmönnum
Brynjar Björn Gunnarsson
Brynjar Björn Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK, var svekktur eftir 3-0 tapið gegn Víkingi R. í Pepsi Max-deild karla í dag en hann segir þó að þetta sé enn í þeirra höndum.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 -  0 HK

Nikolaj Hansen kom heimamönnum yfir á 36. mínútu með skalla en HK-ingar komu öflugir inn í síðari hálfleikinn og sköpuðu mikla hættu.

Andinn datt þó úr liðinu eftir annað markið sem kom upp úr engu.

„Svekktur með úrslitin og kannski frammistöðuna að einhverju leiti. Við ákváðum að leggja minni áherslu sóknarlega og verjast betur og ég taldi okkur geta gert það en fáum fyrsta markið eftir fyrstu almennilega crossinu inn í teig og það kemur mark upp úr því sem var svekkjandi."

„Frammistaðan var ekki alveg nóg góð bara."


HK fór yfir í þriggja manna vörn í dag vegna leikbanna en hann segir það ekki hafa skipt öllu máli.

„Það var meira vegna leikbanna. Bæði Stebbi og Birkir voru frá í dag og töldum okkur geta leyst það með þriggja manna vörn og gefið okkur vægi varnarlega en líka möguleika sóknarlega. Það gekk ekki upp í dag. Kerfið sem þú spilar skiptir ekki öllu máli, við þurftum betri frammistöðu frá fleiri leikmönnum í dag."

„Við reynum að ýta okkur í gang og stigum framar og settum Víkinga undir meiri pressu. Þá gáfum við okkur horn og aukaspyrnur á hættulegum stöðum sem við fengum möguleika upp úr en þegar við vorum búnir að vera framarlega á vellinum fáum við mark í bakið upp úr engu sem við leggjum upp fyrir þá og þá var þessi andi sleginn úr okkur."


HK-ingar eru í 10. sæti með 17 stig þegar tvær umferðir eru eftir en liðið mætir Stjörnunni í næsta leik.

„Við erum enn réttu megin við strikið sem þýðir að þetta er í okkar höndum. Við eigum heimaleik á móti Stjörnunni næst og það er verðugt verkefni sem verður skemmtilegt að takast á við," sagði Brynjar Björn í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner