Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 11. október 2021 13:30
Elvar Geir Magnússon
Zlatan stefnir á að spila gegn Porto
Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic.
Mynd: EPA
Zlatan Ibrahimovic mun líklega æfa að nýju með AC Milan á fimmtudaginn og stefnir á að spila gegn Porto í Meistardeildinni.

Zlatan hélt upp á 40 ára afmæli sitt í byrjun mánaðarins og er að snúa aftur af meiðslalistanum.

Mögulegt er að Zlatan verði í leikmannahópnum gegn Hellas Verona um næsti helgi en sá sænski stefnir á endurkomu gegn Porto í þriðju umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar í næstu viku.

Zlatan hefur aðeins spilað einn deildarleik á þessu tímabili, hann skoraði í 2-0 sigri gegn Lazio þann 12. september.
Athugasemdir
banner
banner
banner