Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 11. nóvember 2020 15:25
Magnús Már Einarsson
Alfons: Fáránlega gaman að geta keppt um þetta
Alfons á æfingu á Víkingsvelli í dag.
Alfons á æfingu á Víkingsvelli í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við vorum klárir í þetta fyrir mánuði og við erum allir klárir í þetta núna. Þetta verður mjög gaman," sagði Alfons Sampsted við Fótbolta.net í dag en hann verður í eldlínunni með U21 landsliði Íslands gegn Ítalíu á morgun.

Þessi lið eru í harðri baráttu um sæti á EM á næsta ári en Ísland er stigi á eftir toppliði Ítalíu. Upphaflega átti þessi leikur að fara fram í síðasta mánuði en það gekk ekki eftir kórónuveirusmit í liði Ítalíu.

„Þetta er ekki í okkar höndum og við fókusum á það sem við getum fókusað á. Það verður ennþá skemmtilegra að spila leikinn núna, þá er maður búinn að undirbúa sig í mánuð í staðinn fyrir fimm daga."

Bjartsýnn fyrir EM baráttuna
Ísland mætir Ítalíu á morgun og Írlandi í síðasta leik sínum um helgina en Alfons er bjartsýnn fyrir þessa leiki.

„Mér líður þannig út frá æfingum vikunnar að allir vita sitt hlutverk. Það eru allir á sömu blaðsíðu og það er mjög þægileg tilfinning," sagði Alfons.

„Ég hef þvílíkt mikla trú á okkur. Við höfum sýnt það í þessu móti að kerfið okkar er gott og ef við fylgjum því þá getum við náð í góð úrslit. Ég tel okkur eiga fína möguleika. Að sjálfsögðu er markmiðið að fara alla leið á EM og það er fáránlega gaman að vera í þeirri stöðu að geta keppt um þetta."

Öflugur heimavöllur
Íslenska liðið hefur unnið alla fjóra heimaleiki sína á Víkingsvelli í undankeppninni. „Við töluðum um það í byrjun að hafa einn heimavöll og hafa það þannig að það yrði leiðinlegt fyrir hin liðin að koma til Íslands og spila á þessum velli. Við erum góðir á þessum velli og við höfum búið þetta til. Ég hugsa að þeir beri virðingu fyrir okkur," sagði Alfons.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner