Fotbolti.net
11.11.26 - 19:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Frans snýr aftur í grænt (Staðfest) - Spilandi styrktarþjálfari

Frans snýr aftur í grænt (Staðfest) - Spilandi styrktarþjálfari
Canon

Mynd: Njarðvík

Lengjudeildin
Frans Elvarsson er genginn til liðs við Njarðvík eftir að hafa skilið við nágrannana í Keflavík eftir 16 tímabil hjá félaginu. Hann verður einnig styrktarþjálfari liðsins.

Frans hóf ferilinn hjá Sindra en gekk í raðir Njarðvíkur árið 2007 og spilaði þar þangað til hann gekk til liðs við Keflavík árið 2011.

Varnaðarorð Frans til Keflvíkinga: Að gera vel getur verið stærsti andstæðingur þess að gera frábærlega
TENGT EFNI

Varnaðarorð Frans til Keflvíkinga: Að gera vel getur verið stærsti andstæðingur þess að gera frábærlega

„Frans er öflugur leiðtogi, hefur borið fyrirliðabandið hjá Keflavík síðustu ár og á yfir 500 meistaraflokksleiki á vegum KSÍ, svo reynsla hans mun styrkja bæði leikmannahóp og þjálfarateymi okkar til muna," segir í tilkynningu frá Njarðvík.

Marc McAusland tók við sem þjálfari liðsins fyrr í þessum mánuði. McAusland er Skoti en hann kom fyrst hingað til lands árið 2016 og spilaði með Keflavík en hann og Frans voru liðsfélagar í þrjú ár.

Njarðvík hafnaði í 5. sæti Lengjudeildarinnar síðasta sumar en tapaði gegn Þrótti í undanúrslitum í umspili um sæti í Bestu deildinni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.