Fotbolti.net
01.11.26 - 23:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Varnaðarorð Frans til Keflvíkinga: Að gera vel getur verið stærsti andstæðingur þess að gera frábærlega

Frans spilaði mjög vel 2012.

Frans spilaði mjög vel 2012.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Frans Elvarsson hefur sagt skilið við Keflavík eftir sextán tímabil hjá félaginu.

Frans, sem er 36 ára, ætlar að spila áfram, hefði viljað spila meira á liðnu tímabili og segir að nokkur félög hafi þegar sett sig í samband við sig.
Frans vill spila meira og félög hafa haft samband
TENGT EFNI

Frans vill spila meira og félög hafa haft samband

Hann var spurður út í hápunktana á ferlinum hjá Keflavík og Frans nefndi nokkra.

„Hápunkturinn inni á vellinum er líklega þegar ég skoraði fyrsta markið mitt fyrir Keflavík í 3-2 tapi á móti KR þegar ég skoraði á 1. mínútu á Hannes Þór Halldórsson. Mig svimaði í svona þrjár mínútur eftir að hafa skorað, þetta var svo mikil upplifun."

„Síðan er það tímabilið 2012 sem stendur upp úr því mér fannst ég spila vel það tímabil og maður var yngri þá og góð spilamennska hafði meiri áhrif á mann þá hugsa ég."

„Síðan eru það bikarúrslitin 2014 þar sem við töpum á móti KR 2-1 og ég lagði upp markið okkar á Hörð Sveinsson og þegar við vinnum 1. deildina covid tímabilið 2020 með flottan hóp sem er síðan grunnurinn að liðinu næstu tvö tímabil í efstu deild þar sem við náum Forsetabikarnum tímabilið 2022."

„Þá stendur líka upp úr úrslitaleikurinn um sæti í efstu deild í fyrra á móti HK upp úr þar sem ég næ að skora og við vinnum flottan 4-0 sigur og komum okkur upp."

„En utan vallar hefur það verið allt fólkið í kringum klúbbinn, allir leikmennirnir sem maður hefur kynnst og verið með í klefanum og þegar maður horfir til baka er maður glaður að hafa kynnst svona mikið af góðu fólki og tengjast þeim í gegnum fótboltann,"
segir Frans.

Ánægður með frammistöðuhneigðina
Hann var svo spurður út í tímabilið í ár hjá Keflavíkurliðinu sem mjög mörgum á óvart, var í engri fallbaráttu og endaði í efri hluta deildarinnar.

„Það var virkilega gaman að sjá hvað við vorum að spila vel, ég hafði ekki hugmynd rétt fyrir tímabilið hvort við værum með gott lið eða ekki og eftir tvö töp í fyrstu leikjunum, þótt frammistaðan hafi verið góð í þeim báðum, var ég jafnvel smeykur um hvort það myndi hafa áhrif á sjálfstraustið og spilamennskuna í framhaldinu - en svo var ekki og við náðum alltaf góðum frammistöðum áfram og síðan byrjuðu úrslitin að fylgja."

„Það sem ég var einna ánægðastur með í sumar var frammistöðuhneigðin hjá liðinu. Við virtumst ekki láta einstök úrslit stjórna okkur heldur héldum við áfram að einbeita okkur að því að spila vel og bæta frammistöðuna. Mér fannst það vera einn stærsti styrkur liðsins og mikilvæg ástæða fyrir því hversu vel okkur gekk."


Keflvíkingar við stýrið
En hvernig sér hann framtíðina hjá Keflavík, hvað var gert vel og hvað væri hægt að gera enn betur?

„Framtíðin er alltaf björt, það er alltaf og hefur verið mikill vilji að gera vel. Það verður skemmtilegt verkefni núna að móta lið fyrir næsta tímabil, margir á förum en það er mikill fengur að hafa Jónas Guðna og Ragnar Aron framkvæmdastjóra uppi á skrifstofu að styðja við þjálfarateymið."

„Þá er líka styrkur hvað þjálfararnir, Halli og Bói ásamt Ómari markmannsþjálfara, sem ég vil meina að sé besti markmannsþjálfari á landinu, hafa verið lengi saman. Allt uppaldir Keflvíkingar og það er „drive" í þeim að þróa Keflavíkurliðið áfram."


Hugsunin ætti að þróast út í að vera ósáttir með árangurinn
Frans hélt svo áfram:
„Mér finnst mikilvægast núna að Keflvíkingar séu ekki saddir. Það var flott að lenda í efri hlutanum en núna ætti hugsunin að mínu mati að þróast yfir í það að vera í raun ósáttir með árangurinn því við höfðum líklega átt að gera betur miðað við frammistöðuna. Ég hugsaði stundum í sumar að við værum að eiga svipað tímabil og Fram nema úrslitin fylgdu frammistöðunum hjá þeim oftar".

„Eitt sem ég hef upplifað í gegnum fótboltann er það að gera vel getur verið stærsti andstæðingur þess að gera frábærlega, svo ég hlakka til að sjá Keflavík á næsta tímabili og hvernig verður brugðist við árangrinum í ár,"
segir Frans.
2020 var grunnurinn að stórskemmtilegu liði 2022.

2020 var grunnurinn að stórskemmtilegu liði 2022.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ómar fær mikið lof frá Frans.

Ómar fær mikið lof frá Frans.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fagnaði markinu gegn HK með stæl.

Fagnaði markinu gegn HK með stæl.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Haraldur Freyr og Jónas Guðni.

Haraldur Freyr og Jónas Guðni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stoðsendingin á Hörð Sveinsson er einn af hápunktunum.

Stoðsendingin á Hörð Sveinsson er einn af hápunktunum.

Canon

Mynd: Ingólfur Hannes Leósson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.