Man Utd tilbúið að hlusta á tilboð í Rashford og Martínez - Arteta vill Vlahovic - Ashworth gæti tekið til starfa hjá Arsenal
   mið 11. desember 2024 07:00
Hafliði Breiðfjörð
Alvöru fótboltaferð til London með Hjamma
Mynd: Tango Travel
Helgina 7-10. mars ætlar Ferðaskrifstofan Tango Travel í samvinnu við Hjálmar Örn Jóhannsson að skella sér í alvöru fótboltaferð til London á tvo stórleiki í enska boltanum.

Hjálmar verður sérstakur skemmtanastjóri í ferðinni en meðal annars verður boðið upp á Pub Quiz. Honum til halds og traust verður Þór Bæring Ólafsson. Þetta er fótboltaferð fyrir fótboltafíkla sem vilja prófa eitthvað alveg nýtt!

ATH: Það eru aðeins 30 sæti í boði í þessa ferð.

Verðið er 199.900 kr á mann miðað við tvo saman í herbergi. Það kostar 40.000 kr aukalega að vera í einstaklingsherbergi.

Innifalið í pakkanum er flug með Play til London Stansted, 12 kg flugfreyjutaska + bakpoki, gisting í 3 nætur á Moxy London Stratford, morgunmatur, rúta til og frá flugvelli, VIP-miðar á báða leikina, íslensk fararstjórn og íslenskur skemmtanastjóri.

Hér er hægt að skrá sig í ferðina ógurlegu

Dagskrá:
Á föstudeginum verður flogið til London og meðal annars ætlar Hjalmar Örn að vera með létt Pub Quiz svona aðeins til að hita hópinn upp fyrir gleði helgarinnar.

Á laugardeginum verður farið á stórleik Leyton Orient og Northampton í League One en leikurinn fer fram á heimavelli Leyton Orient, Gaughan Group Stadium. Auðvitað verður farið á góða hverfispöbba fyrir leikinn en Þór Bæring Ólafsson þekkir þetta svæði afar vel. Þegar verður komið á völlinn sjálfan verður í boði þriggja rétta máltíð í 1881 Suite og ýmislegt fleira verður í boði fyrir hópinn. Miðarnir á völlinn eru í Justin Edinburgh West Stand. Þetta er einstök upplifun fyrir alla sem elska enska boltann.

Á sunnudeginum verður svo farið á leik Tottenham og Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni á Tottenham Hotspur Stadium. Fyrir leikinn ætlar Hjalmar Örn að sýna hópnum hvar stuðningsmenn Tottenham hita upp fyrir leiki og svo fer hópurinn á völlinn í Travel Club Lounge en þar eru í boði smáréttir og fyrrum leikmaður Tottenham mætir á svæðið. Einnig eru í boði drykkir í hálfleik. Miðarnir eru svo í Block 312-313 í stúkunni.

Á mánudeginum verður svo flogið heim eftir rosalega fótboltaveislu í London.

Nánari upplýsingar um flug og hótel:
Flug með PLAY
7. mars 2025
Keflavík - London Stansted 07:00 - 10:00

10. mars 2025
London Stansted - Keflavik 11:00 - 14:05


Hótel
Moxy London Stratford
86 Great Eastern Road
London E15 1GR

Hér er hægt að skoða allar fótboltaferðir sem eru í boði hjá Tango Trave
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner