Almarr: Gleymist í umræðunni að Qvist er góður leikmaður
Auglýsing

Almarr Ormarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Almarr Ormarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er gríðarlega mikil spenna hjá okkur öllum," segir Almarr Ormarsson, varnarmaður KA, en liðið heimsækir ÍA í fyrstu umferð Pepsi Max-deildarinnar á sunnudag.
KA hefur harma að hefna á Akranesi eftir að hafa tapað 3-1 gegn ÍA fyrstu umferðinni í fyrra.
„Við viljum gera betur en í fyrra. Við mættum ekki vel í þann leik. ÍA var á svaka flugi þá en það er minni umræða um þá núna. Þeir eru með gott lið. Við förum klárlega í þann leik til að vinna hann."
Danski varnarmaðurinn Mikkel Qvist kom til KA í vetur en hann hefur vakið athygli fyrir löng innköst sín. Freyr Alexandersson, aðstoðarlandsliðsþjálfari, sagði á Stöð 2 Sport á dögunum að Qvist sé hins vegar ekki góður í fótbolta.
„Þetta eru asnalegu löng innköst. Það gleymist í umræðunni að þetta er góður leikmaður þó að einhverjir sérfræðingar hafi haldið öðru fram um daginn. Hann kemur með meira en þessi innköst fyrir okkur. Þau eru hins vegar vopn sem við getum vonandi nýtt okkur," sagði Almarr.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.